Icemoto var fyrst stofnuð árið 2002 undir slóðinni icemoto.tk, seinna breyttist lénið svo í icemoto.com með tilkomu nýrrar og betri síðu. Síðan var strax mjög vinsæl meðal mótorhjólamanna, enda komu alltaf inn ferskar fréttir, nýjar myndir o.fl. o.fl. inn á síðuna. Síðan fór síðan í dvala árið 2008 og hefur ekki verið í gangi fyrr en núna, árið 2010 þegar eigandi síðunnar Aron Icemoto ákvað loksins að setja hana upp aftur.
Nýja síðan er búin nýjustu tækni í vefsíðutólum og má þá nefna, stillanlega flokka á forsíðu sem gerir notendum kleift að raða síðunni upp eftir þeirra smekk. Einnig er síðan með sérhannaðann farsímavef, bæði fyrir venjulega farsíma og svo Apple Iphone. Farsímavefurinn er mjög léttur og gerir fólki kleift að skoða síðuna í farsímanum án þess að þurfa að bíða endalaust eftir að hún hlaðist upp.
Í sumar verður svo VefTv starfrækt á síðunni en IcemotoTv verður á öllum keppnum sumarsins með myndbandsupptökuvél.
Ábyrgðarmaður síðunnar er Aron Frank Leópoldsson og er allar myndir, myndbönd og fréttir eign hans nema annað sé tekið fram.
Óheimilt er að afrita myndir eða myndbönd af síðunni án þess að fá leyfi hjá eiganda. Hægt er að senda aroni póst á tölvupóstfangið aron(hjá)icemoto.is








