Fyrrum AMA supercross meistarinn James Stewart hefur gefið það út að hann muni ekki keppa á X Games eins og til stóð. James var skráður í þrjár keppnir á leikunum, Best Whip, Super X og Speed & Style og hafði hann möguleika á þremur gull medalíum. Minna en mánuður er frá því að James steig á hjólið sitt aftur eftir erfið meiðsli og æfir hann nú stíft fyrir fjórar síðustu keppninar í Outdoors tímabilinu í motocrossi.
Erlent
James Stewart keppir ekki á X Games
Kevin Windham kominn í Honda Red Bull
Team Honda Red Bull Racing tilkynnti í gær að Kevin Windham myndi koma í liðið í staðinn fyrir Davi Millsaps. Millsaps slasaðist í Budds Creek 19. júní og er ekki ljóst hvenar hann snýr aftur. Síðasta supercross- tímabil var eitt það besta hjá hinum 32. ára Kevin Windham, hann var á palli 8 sinnum og vann tvær keppnir.
AMA supercross 2011 (Dagskrá)
Búið er að gefa út dagskrá og tímasetningu fyrir AMA Supercross 2011 tímabilið. Fyrsta keppnin verður haldin 8. janúar 2011 á Angel stadium í Anaheim og bíða eflaust margir spenntir þrátt fyrir að nokkuð sé í keppnina ennþá. Síðasta tímabil var sjokkerandi fyrir marga aðdáendur þeirra bestu, en eins og eflaust margir tóku eftir datt James Stewart út í annari keppni og var ekkert meira með á tímabilinu. Chad Reed datt einnig út í nokkrar keppnir en kom þó aftur inn í lok tímabilsins.
Supercrossbrautin í Las Vegas (myndskeið)
Síðasta umferð AMA supercrossins verður haldin í Sam Boyd Stadium í las vegas. Það er engin smá braut sem við fáum að þessu sinni, enda er brautin alltaf flott þegar farið er í Sam Boyd Stadium. Lites flokkurinn verður líka í öllu sínu veldi, East West shoutout. Snjór í Salt Lake City
Já ekki er nú öll vitleysan eins, næstkomandi laugardag fer fram 16. umferð AMA supercrossins og verður hún haldin í Salt Lake City. Búið er að gera brautina, en er hún mjallahvít eins og er eftir að byrjaði að snjóa í Salt Lake City.
Supercrossbrautin í Salt lake (Myndskeið)
Næstkomandi laugardag fer fram næst seinasta kappnin í AMA supercross, en hún verður haldin í Salt lake city . Nú er brautargerð í fullum gangi fyrir Laugardaginn, en búið er að gefa út 3D myndband sem sýnir hvernig brautin mun verða.Skemmtileg keppni í Seattle (Úrslit)
15. umferð AMA supercrossins fór fram í Seattle í gær, en fyrir keppnina var það orðið ljóst að Ryan Dungey væri orðinn meistari í 450 flokknum eftir að Ryan Villopoto slasaðist í síðustu keppni og verður ekki meira með á þessu tímabili. Ef þú vilt ekki vita úrslitin úr keppninni hættu þá að lesa hér.
Supercrossbrautin í Seattle (Myndskeið)
Næstkomandi laugardag fer fram þriðja síðasta keppnin í AMA supercross, en hún verður haldin á Quest Field í Seattle. Nú er brautargerð í fullum gangi fyrir morgundaginn, en búið er að gefa út 3D myndband sem sýnir hvernig brautin mun verða.
Dramatík í St. Louis
Mikil dramatík var í St. Louis á laugardaginn þegar fjórtanda umferð AMA supercrossins fór fram. Brautin var mjög erfið og tæknileg og fengu nokkrir ökumenn heldur betur að kynnast því. Ef þú vilt ekki fá að vita úrslit o.svf. þá skaltu ekki lesa lengra.



Erlent