Þar sem ég er mikill aðdáandi Apple Iphone símans hef ég lengi verið að leita af almennri lausn við að hafa símann öruggann á stýri mótorhjóls. Eitthvað er til af festingum fyrir Iphone en síminn hefur samt sem áður alltaf verið nokkuð óvarann og gjörsamlega varnarlaus gegn rigningu. Nú loksins er komin lausn á þessum vanda með sniðugu hulstri og festingu sem kallast BioLogic.
Sniðugar vörur
Viltu hafa iphone-inn öruggann og vatnsheldann á hjólinu ?
Þar sem ég er mikill aðdáandi Apple Iphone símans hef ég lengi verið að leita af almennri lausn við að hafa símann öruggann á stýri mótorhjóls. Eitthvað er til af festingum fyrir Iphone en síminn hefur samt sem áður alltaf verið nokkuð óvarann og gjörsamlega varnarlaus gegn rigningu. Nú loksins er komin lausn á þessum vanda með sniðugu hulstri og festingu sem kallast BioLogic.
Garmin Zūmo 665
Garmin leiðsögutækin hafa sannað sig vel hér á landi og eru vinsælustu leiðsögutækin á Íslandi. Garmin framleiðir sér mótorhjólatæki sem eru t.d. með góðum snertiskjá sem auðvelt er að nota þó svo að maður sé í þykkum hönskum. Zūmo tækin eru sérhönnuð fyrir mótorhjólafólk og þola mikinn hristing, vatn o.fl. Við ætlum að skoða zūmo 665 tækið aðeins nánar.
Notaðu Iphone sem hraðamæli o.fl. fyrir Harley
GaugeFace er nýtt forrit í Iphone sem gerir þér kleift að nota símann sem upplýsingaskjá úr tölvu Harley-Davidsson hjólsins þíns. Forritið sýnir t.d. hraðamæli, snúningsmæli, vélarhita, hvaða gír þú ert í, stefnuljós og margt fleirra. Hægt er að nota bæði Iphone og Ipod touch með forritinu.
Renthal setur á markað nýjar handahlífar
Renthal hefur sett á markað nýjar handahlífar til notkunar á torfæruhjólum og eru þær hannaðar til að verja hendur ökumanns gegn grjóti og öðrum aðskotahlutum sem eiga það til að skjótast undan afturdekki hjóls. Handahlífarnar eru mjög flott hannaðar og extra léttar að sögn Renthal. Hlífarnar koma með "multi mounting bracket" sem gerir þér kleift að festa þær á mjög einfaldann hátt.
K&N Powerkleen
K&N fyrirtækið hefur lengi verið þekkt fyrir að bjóða upp á háflæðis- loftsíur og vörur tengdar þeim. Nú nýlega gaf K&N út hreinsiefni fyrir loftsíur o.fl. Efnið ber heitið "Power Kleen" og er ætlað í að þrífa loftsíur og losa þær við alla olíu sem á þeim eru, ásamt því sem nota má efnið til að þrífa erfiða bletti á t.d. mótor og á efnið að hreinsa gamla og nýja olíubletti ótrúlega vel.
Rampur fyrir pallbíla
Fyrirtæki sem heitir Load All hefur sett á markað sniðuga rampa/palla fyrir ameríska pallbíla. Varan virkar þannig að þú setur sérstakan búnað á pallbílinn þinn sem gerir þér kleift að draga út jafnbreiðann ramp og pallurinn þinn er of keyra mótorhjólið eða fjórhjólið beint upp á pallinn án þess að lenda í veseni. Nú er loksins hægt að koma leiktækjunum sínum auðveldlega upp á stóra pallbílinn.
Mótorhjólagrind fyrir prófíltengi
Nýlega kom á markað mótorhjólagrind fyrir prófíltengi hér á landi, en grindin er hönnuð og smíðuð hér á landi. Það er fyrirtækið Stálbær sem framleiðir grindurnar. Mótorhjólagrindin er mjög sniðug og gerir ferðalag með hjólið mun auðveldara sérstaklega ef menn eru einnig að ferðast með ferðavagn eða kerru. Grindin er nefnilega hönnuð þannig að hægt er að setja dráttarkrók aftan á hana til að draga ferðavegn eða kerru.





