Icemoto.is

Fréttavefur hjólamanna

Sunnudagur, 4 Febrúar 2012

Þú ert hér: Motocross Innlent Unglingalandsmótið verður á Akranesi

Unglingalandsmótið verður á Akranesi

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Akrabraut-450x337
akrabraut_kort
Vegna kæru frá landeigendum í Borgarfirði verður motocrossið á Unglingalandsmóti UMFÍ fært frá nýrri braut í Borgarnesi til Akraness. Þrátt fyrir stuttan fyrirvara hafa menn og konur á Akranesi brett upp ermar og gert Akrabrautina klára fyrir keppnina á mettíma. Rúmlega 30 ungmenni eru skráð til leiks og án nokkurs vafa verður mikið stuð á Skaganum á sunnudaginn.

Keppnin hefst á sunnudaginn klukkan 12 og hvetjum við alla til að koma við í Akrabraut og sjá okkar björtustu vonir keppa á landsmótinu.