Eyþór endaði þriðji eftir daginn, en drengurinn er greinilega með mikið keppnisskap og lætur ekki smá byltu stoppa sig frá því að klára keppni. Eins fram kom hér að ofan sigraði Aron Ómarsson MX open, annar varð Hjálmar Jónsson og þriðji varð Eyþór Reynisson. James Robo náði ekki að klára keppni þar sem hann braut subframið á hjólinu sínu.
Í MX2 sigraði Eyþór Reynisson, Viktor Guðbergsson varð annar og þriðji varð Jónas Stefánsson.
Í 40+ flokki sigraði Haukur Þorsteinsson enn einu sinni, annar varð Sigurður Hjartar Magnússon og þriðji varð Guðmundur Guðmundsson.
Signý Stefánsdóttir sigraði kvennaflokkinn og Eyney Gunnarsdóttir varð önnur.
Í 85cc flokki sigraði Guðbjartur Magnússon og Þorsteinn Helgi varð annar.
Kjartan Gunnarsson sigraði unglingaflokkinn, annar varð Guðmundur Kort og þriðji varð Björgvin Jónsson.





