Þriðja umferð AMA motocrosssins fór fram í ágætis veðri á High Point brautinni í Pennsilvaníu í gær. Mikill fjöldi áhorfenda var á staðnum og frábært veður þangað til þegar líða tók á keppnina, þá byrjaði að rigna. VARÚÐ ÚRSLIT Í FRÉTTINNI!
Í fyrsta mótói stóra flokksins náði Ryan Dungey holuskotinu en Ryan Villopoto var rétt á eftir honum og náði fyrsta sætinu strax á fyrsta hring og fjarlægðist öðrum keppendum mjög hratt. Eftir fimm hringi var Villopoto enn fyrstur, Ryan Dungey annar og Mike Alessi þriðji. Það gerðist lítið í þessu mótói, Villopoto var mjög öruggur allan tímann og sigraði örugglega, annar varð Ryan Dungey og Mike Alessi varð þriðji. Chad Reed endaði í fimmta sæti í þessu mótói en hann leiddi stigakeppnina fyrir þessa umferð.
Í fyrsta mótói 250 flokksins náði Honda ökumaðurinn Darryn Durham strax forustu og hélt henni allt fram að þrettánda hring. Á þrettánda hring náði Blake Baggett framúr honum en hann var í þriðja sæti allt fram að þrettánda hring. Baggett náði svo að halda fyrsta sætinu út mótóið og sigraði vel og örugglega, annar varð Dean Wilson og þriðji varð Tyla Rattray.
Í öðru mótói stóra flokksins breyttist veðrið og það byrjaði að rigna. KTM ökumaðurinn Mike Alessi leiddi mótóið allt fram að fimmta hring þegar Chad Reed fór fram úr honum og náði forustunni, í þriðja sæti var þá Ryan Villopoto. Chad Reed hélt forustunni allt mótóið og sigraði, annar varð Ryan Villopoto og þriðji varð Ryan Dungey. Mike Alessi sem byrjaði mótóið svo vel endaði í fimmta sæti. Nú var ljóst að Ryan Villopoto hafði sigrað þessa umferð en er þó 15 stigum á eftir Chad Reed sem leiðir enn stigakeppnina.
Blake Baggett hélt áfram frábærum akstri í öðru mótói 250 flokksins og náði meira segja hraða hring dagsins 2 mínútur og 24 sekúndur. Blake hélt forustunni allt mótóið og sigraði örugglega, annar varð Tyla Rattrey og þriðji varð Eli Tomac.
Staða og úrslit
| Stóri flokkurinn | 250 flokkurinn |
|
|
| Stigastaða stóri flokkurinn | Stigastaða 250 flokkurinn |
|
|





