Bifhjólaklúbburinn Grindjánar standa fyrir hópkeyrslu til Grindavíkur á Sjóarann síkáta 4. júní næstkomandi. Ætlast er til að þeir sem ætla að mæta í hópkeyrsluna hittist á bílaplaninu hjá Bláa lóninu kl. 13:30 og verður lagt af stað kl. 14:00.
Innlent
Hópkeyrsla Grindjána
Bifhjólaklúbburinn Grindjánar standa fyrir hópkeyrslu til Grindavíkur á Sjóarann síkáta 4. júní næstkomandi. Ætlast er til að þeir sem ætla að mæta í hópkeyrsluna hittist á bílaplaninu hjá Bláa lóninu kl. 13:30 og verður lagt af stað kl. 14:00.
Skoðunardagur hjá Örnum
Árlegur skoðunardagur mótorhjólaklúbbsins Ernir var haldin í dag við nýja skoðunarstöð Aðalskoðunar að Holtsgötu 52 í Njarðvík. Hátt í 100 manns mættu og létu skoða hjólin sín. Þegar viðmælandi vefsins var staddur á svæðinu í morgun taldi hann 50 hjól en opið var allan daginn.
Mótorhjólasýning í Eyjum 28. maí
Í tilefni af 5 ára afmæli mótorhjólaklúbbsins Mc Drullusokkar verður haldin stór og glæsileg mótorhjólasýning í stóra sal íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja laugardaginn 28. maí. Þar verða sýnd hjól af öllum gerðum og á öllum aldri, bæði í eigu eyjamanna og annara. Aðgangur er ókeypis og boðið verður uppá grillaðar pylsur og gos fyrir alla. Sýningin er opin frá 11-18.Bifhjólaslys í Jaðarseli
Bifhjólaslys varð nú rétt í þessu í Jaðarseli í Breiðholti þegar ökumaður bifhjóls missti stjórn á hjólinu og endaði á ljósastaur. Lögreglan er á staðnum og rannsakar málið en talið er að ökumaðurinn hafi ekið of hratt og misst stjórn á hjólinu með fyrrgreindum afleiðingum. Ökumaður bifhjólsins er ekki talinn alvarlega slasaður en hjólið er gjörónýtt.
Íslandsmeistaramótið í hjólafimi
Næstkomandi laugardag verður haldið Íslandsmeistaramót í hjólafimi. Keppt verður í tímamældri þrautabraut, þar sem úrslit ráðast á tíma og tækni, en refsistig verða gefin fyrir villur í brautinni. Keppt verður á 125cc hjólum sem verða á svæðinu til að tryggja jafnræði. Keppnin hefst kl. 14:00 laugardaginn 1. maí.
Bifhjólaslysum fækkar
Slysum þar sem bifhjól koma við sögu fækkar umtalsvert árið 2009 borið saman við árið 2008. Þetta kemur m.a. fram í slysaskýrslu Umferðarstofu fyrir árið 2009. Heildarfjöldi slasaðra og látinna fer úr 107 niður í 89 en þetta er 16,8% fækkun. Í þessum tölum er samanlagður fjöldi lítið slasaðra, alvarlega slasaðra og látinna sem voru á léttum og þungum bifhjólum. Árið áður hafði hinsvegar samanlagður fjöldi slasaðra og látinna bifhjólamanna fjölgað um 18,9%. Það hefur því náðst umtalsverður árangur í fækkun bifhjólaslysa.
Spennandi sýning
Dagana 30. apríl til 2. maí verður haldin Burnouthelgin 2010 sem er samstarfsverkefni Snigla, Kvartmíluklúbbsinns og BÍKR. Burnouthelgin 2010 mun bjóða upp á dagskrá við allra hæfi og þar á meðal sýningarviðburð sem verður sennilega sá stærsti síðan Sýningarhöllin Ártúnshöfða var og hét. BÍKR mun standa fyrir brautarrallý af bestu gerð og fleiri uppákomum á Samskipasvæðinu við Holtagarða. Á sýningunni verða sýnd um 200 tæki, sportbílar, kvartmílutæki og þar af um 100 mótorhjól á tæplega 8000 fermetrum.
Hópakstur mótorhjólafólks 1. maí
Þann 1. maí hefur um árabil verið haldin forvarnardagur Snigla með hópkeyrslu um borgina til að minna aðra vegfarendur á að mótorhjólin eru komin út á göturnar. Þetta ár er engin undantekning og er ætlunin nú sem fyrr að minna rækilega á okkur á götum borgarinnar og á sama tíma vekja athygli á málstað okkar en fyrir alþingi liggur frumvarp til nýrra umferðarlaga, þar sem lítið tillit er tekið til athugasemda mótorhjólamanna.Safnast verður saman á Laugaveginum frá klukkan 10:30, hann fylltur af mótorhjólum upp úr öllu (Laugarvegur verður lokaður umferð á meðan) Keyrslan sjálf leggur af stað 11:30 niður Bankastræti og þaðan um Vonarstræti milli alþingis og ráðhúss Reykjavíkur, þar sem ætlunin er að láta aðeins heyrast í hjólunum og / eða flauta til að vekja athygli á málstað okkar. Leiðin liggur svo um Hringbraut, Bústaðaveg, Kringlumýrarbraut og Reykjanesbraut áður en keyrslan endar í Kauptúni gengt IKEA.



Innlent

