Icemoto.is

Fréttavefur hjólamanna

Sunnudagur, 4 Febrúar 2012

Þú ert hér: Götuhjól Erlent

Erlent

Husqvarna hannar götuhjól

husqvarna-1Ítalski hjólaframleiðandinn Husqvarna hefur gefið út teikningar af nýju 900cc twin götuhjóli sem verður að öllum líkindum sýnt seinna á þessu ári. Myndirnar sýna ekki hvernig hjólið mun endanlega lýta út en gefur þó grófa mynd af því hvernig það mun vera. Talið er að hjólið verði sýnt á Milan mótorhjólasýningunni í nóvember á þessu ári.

Ökumaður reynir að keyra niður bifhjólamann (Myndskeið)

screen-capture-23Ökumenn bíla bera mismikla virðingu fyrir mótorhjólamönnum bæði hér á landi og erlendis. Í meðfylgjandi myndskeiði sést hvernig tveir mótorhjólamenn keyra saman eftir skemmtilegum vegi en svo þegar annar þeirra ætlar að taka framúr pallbíl fyrir framan hann reynir bílstjórinn að keyra hann útaf veginum.

Kawasaki vinnur Le Mans (Myndskeið)

lemansGSR Kawasaki liðið sigraði örugglega Le Mans 24 stunda keppnina um helgina, en hún var haldin að sjálfsögðu á Le Mans kappakstursbrautinni í Frakklandi. Þetta var fyrsti sigur GSR Kawasaki liðsins síðan 1999 og fögnuðu liðsmenn vel eftir 828 hringi. Le Mans keppnin er haldin ár hvert og er ekið samfellt í 24 klukkustundir.