Icemoto.is

Fréttavefur hjólamanna

Sunnudagur, 4 Febrúar 2012

Þú ert hér: Götuhjól

Götuhjól

Hópkeyrsla Grindjána

sjoarinnhopkeyrslaBifhjólaklúbburinn Grindjánar standa fyrir hópkeyrslu til Grindavíkur á Sjóarann síkáta 4. júní næstkomandi. Ætlast er til að þeir sem ætla að mæta í hópkeyrsluna hittist á bílaplaninu hjá Bláa lóninu kl. 13:30 og verður lagt af stað kl. 14:00.

Skoðunardagur hjá Örnum

pano4_largeÁrlegur skoðunardagur mótorhjólaklúbbsins Ernir var haldin í dag við nýja skoðunarstöð Aðalskoðunar að Holtsgötu 52 í Njarðvík. Hátt í 100 manns mættu og létu skoða hjólin sín. Þegar viðmælandi vefsins var staddur á svæðinu í morgun taldi hann 50 hjól en opið var allan daginn.

Husqvarna hannar götuhjól

husqvarna-1Ítalski hjólaframleiðandinn Husqvarna hefur gefið út teikningar af nýju 900cc twin götuhjóli sem verður að öllum líkindum sýnt seinna á þessu ári. Myndirnar sýna ekki hvernig hjólið mun endanlega lýta út en gefur þó grófa mynd af því hvernig það mun vera. Talið er að hjólið verði sýnt á Milan mótorhjólasýningunni í nóvember á þessu ári.

Ökumaður reynir að keyra niður bifhjólamann (Myndskeið)

screen-capture-23Ökumenn bíla bera mismikla virðingu fyrir mótorhjólamönnum bæði hér á landi og erlendis. Í meðfylgjandi myndskeiði sést hvernig tveir mótorhjólamenn keyra saman eftir skemmtilegum vegi en svo þegar annar þeirra ætlar að taka framúr pallbíl fyrir framan hann reynir bílstjórinn að keyra hann útaf veginum.

Mótorhjólasýning í Eyjum 28. maí

drullusokkar-2011A3Í tilefni af 5 ára afmæli mótorhjólaklúbbsins Mc Drullusokkar verður haldin stór og glæsileg mótorhjólasýning í stóra sal íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja laugardaginn 28. maí. Þar verða sýnd hjól af öllum gerðum og á öllum aldri, bæði í eigu eyjamanna og annara. Aðgangur er ókeypis og boðið verður uppá grillaðar pylsur og gos fyrir alla. Sýningin er opin frá 11-18.

Bifhjólaslys í Jaðarseli

slysBifhjólaslys varð nú rétt í þessu í Jaðarseli í Breiðholti þegar ökumaður bifhjóls missti stjórn á hjólinu og endaði á ljósastaur. Lögreglan er á staðnum og rannsakar málið en talið er að ökumaðurinn hafi ekið of hratt og misst stjórn á hjólinu með fyrrgreindum afleiðingum. Ökumaður bifhjólsins er ekki talinn alvarlega slasaður en hjólið er gjörónýtt.

Frábær forvarnar-auglýsing (Myndskeið)

motorcycle-crash-740712Umferðastofa var dugleg að birta forvarnar-auglýsingar í sambandi við bifhjólamenn árin 2008 og 2009 undir fyrirsögninni "Líttu tvisvar" en þar herjaði hún á ökumenn bifreiða að vera meira vakandi fyrir bifhjólamönnum. Fréttamaður rakst á flotta forvarnar-auglýsingu frá útlandinu góða, en sú auglýsing herjar beint á ökumenn bifhjóla.

Síða 1 af 3