Icemoto.is

Fréttavefur hjólamanna

Sunnudagur, 4 Febrúar 2012

Þú ert hér: Freestyle Innlent

Innlent

Freestyle sýning í Galtalæk

galtalaekurNewLaugardaginn 25. júní næstkomandi fer fram freestyle sýning í Galtalækjarskógi en þar munu þrír erlendir ökumenn leika listir sýnir ásamt tveimur íslenskum ökumönnum. Eins og fram hefur komið munu þeir Martin Snellström og Micke Gullstrand mæta á klakann og leika listir sínar fyrir íslendinga, en nú hefur einn annar ökumaður bæst í hópinn. Ekki er búið að gefa upp nafnið á honum en hann hefur eins og hinir tveir líka keppt á Red Bull X Fighters.

Freestyle- kappar á leið til landsins

galtalaekurFreestyle kapparnir Martin Snellström og Micke Gullstrand eru á leið til landsins til að halda freestyle sýningu fyrir landann. Sýningin verður haldin á útihátíðinni í Galtalæk sem fram fer helgina 24-26 júní næstkomandi.

Flottir freestyle taktar á Lex Games (Myndskeið)

freestyleLexGamesNokkrir íslenskir strákar sýndi listir sýnar í háloftunum í dag á Lex Games, en greinilegt er að freestyle er alltaf að verða vinsælla hér á landi. Einn útlendingur var með að þessu sinni en sá heitir James Robinson. Strákarnir sýndu listir sýnar fyrir framan fjöldann allan af fólki sem fögnuðu þeim vel. Hér fyrir neðan má sjá stutt myndskeið frá freestyle-inu og lengra video verður klippt von bráðar og birt hér á síðunni.

Dagskrá fyrir LEX Games

LEX10_bakLex Games voru haldnir í fyrsta sinn í fyrra og slógu þeir rækilega í gegn. Næstu helgi verða þeir haldnir í annað sinn og er dagskráin helmingi stærri og flottari. Hátíðin verður bæði á laugardag og sunnudag og verður hún í Bolöldu og á rallýcrossbrautinni í hafnarfirði.

Jói Kef með nýtt stunt (Myndskeið)

joikefOfurhuginn Jói Kef er alltaf eitthvað að bardúsa í freestyle listum sínum og nú hefur hann verið að æfa sig að leika listir á trial hjóli. Hægt er að segja að drengurinn sé orðinn nokkuð fær eins og sést í myndskeiðinu sem fylgir fréttinni.