Ofurhuginn Travis Pastrana sigraði Moto X Freestyle viðburðinn sem fram fór í gærkvöldi á X Games. Sigurinn var kominn í höfn eftir aðeins tvær umferðir hjá Travis, en þegar kom að þriðju og síðustu umferð hans ákvað hann að fara niður á freestyle- svæðið fagna aðeins og taka svo tvöfallt backflip fyrir áhorfendur.
Það varð allt brjálað eftir backflippið og áhorfendur fríkuðu út og fögnuðu Travis vel. "Travis hefur ekki keppt í freestyle í þrjú ár, kemur svo á X games og tekur gullið, þvílíkur íþróttamaður"; Sagði einn keppanda. Travis ætlar sér að keppa í þrem greinum til viðbótar á X games og ætlar hann sér að ná gulli í þeim öllum.
Dim lights Embed Embed this video on your site
Facebook Social Comments Box for Joomla




