Freestyle ökumaðurinn Levi Sherwood meiddist nokkuð á Nitro Circus LIVE show í Las Vegas síðustu helgi þegar hann neyddist til að stökkva af hjóli sínu í loftinu eftir að hjólið hans fór í hlutlausann rétt áður en hann yfirgaf rampinn. Sherwood braut tvö bein í vinstri úlnlið, marði lunga, meiddist á nýra og brákaði nokkra hryggjaliði.
Erlent
Levi Sherwood meiddur - Missir af X games
Viðtal við Monty "mekka" Levi Sherwood
Hvernig ætli það sé að vera "mekki" hjá einum besta FMX ökumanni í heimi ? Smá innlit í líf Monty (Stephen Montgimery),sem er mekki hjá hinum Nýja Sjálenska Levi Sherwood Red Bull X-fighters meistara og X-Games Silfurverðlaunahafa og lesið hvernig hann lifir lífinu með Levi Sherwood.

http://www.freeridermx.com.au/news/latest-buzz/1930-montey-the-great
Travis Pastrana sigraði Moto X freestyle (Myndskeið)
Ofurhuginn Travis Pastrana sigraði Moto X Freestyle viðburðinn sem fram fór í gærkvöldi á X Games. Sigurinn var kominn í höfn eftir aðeins tvær umferðir hjá Travis, en þegar kom að þriðju og síðustu umferð hans ákvað hann að fara niður á freestyle- svæðið fagna aðeins og taka svo tvöfallt backflip fyrir áhorfendur.
Josh Hill slasaður (Myndskeið)
Supercross ökumaðurinn Josh Hill slasaðist ílla þegar hann var að æfa sig fyrir X Games í gær. Josh var að æfa sig fyrir "Speed & Style" viðburðinn og var að æfa backflip þegar eitthvað fór úrskeiðis og hann datt ílla. Josh var fluttur með sjúkrabíl á næsta sjúkrahús þar sem hann var ransakaður. Kom í ljós að hann er með brotna öxl, brotið læri, marið lunga og fór hann einnig úr mjaðmalið. Josh er á leiðinni í aðgerð í dag þar sem gert verður að sárum hans.
Travis Pastrana keppir í nokkrum greinum á X Games
Ofurhuginn Travis Pastrana hefur ákveðið að setja nýtt met á X Games í ár. Ætlar hann að gera það sem enginn maður hefur gert á leikunum áður, keppa í fimm greinum á sama mótinu. Árið 2006 keppti Travis í fjórum greinum og vann gullið í þremur af þeim. Í ár ætlar hann að keppa Rally, SuperRally, Moto X Best Trick, Speed & Style og Freestyle, en hann hefur ekki keppt í freestyle síðan 2006.
Levi Sherwood sigraði X-figters
Levi Sherwood sigraði Red Bull X-fighters sem fram fór í Rússlandi í dag. Levi og Nate Adams kepptu á móti hvor öðrum um fyrsta sætið eftir útsláttar riðlana og stóð hinn 18 ára gamli Levi Sherwood uppi sem sigurvegari. Þetta er fyrsta X-fighters keppnin sem Levi vinnur og er greinilegt að strákurinn á eftir að vera mikið í sviðsljósinu á næstunni.
Brian Deegan spólar upp golfvöll (Myndskeið)
Freestyle kappanum Brian Deegan hefur lengi dreymt um það að fara á hjólinu sínu og gera golfara vitlausa með því að keyra á golfvellinum og spóla í sandglompunum. Hann lét verða af þessu á dögunum við lítinn fögnuð viðstaddra. Brian var fljótur að koma sér burt eftir þessa uppákomu.
Við mælum ekki með því að fólk leiki þetta eftir hér heima.
Travis Pastrana tekur annað double bakflip (Myndskeið)
Freestyle- kappinn Travis Pastrana tók nú á dögunum í annað sinn double backflip, en hann var fyrsti maðurinn til að gera þetta trick, en aðeins einn annar hefur gert það á mótorhjóli. Travis gerði trickið um daginn á sýningunni sinni "Nitros Circus Live" fyrir framan þúsundir manna. Backflippið heppnaðist fullkomnlega og hefur þá Travis tekið þetta trick tvisvar sinnum á sinni ævi.
James Stewart með á X Games
Búið er að gefa út lista yfir þá keppendur sem búið er að bjóða að keppa á X Games í ár. Á listanum má sjá að James Stewart mun keppa í "Best whip" en hann keppti einmitt í þeim flokk í fyrra og endaði í öðru sæti. Hann keppti einnig í supermoto keppninni en datt og slasaðist lítillega. Einnig mun James keppa í "Super X" á leikunum í ár.
X-Games haldið í Los Angeles
X-Games verður haldið í Los Angeles þetta árið en þetta er í 16. árið sem X-Games fer fram. X-games verður haldið á nokkrum stöðum í LA þar má nefna, Staples Center, Nokia Theatre, Los Angeles Coliseum og L.A. LIVE. Þetta er í sjöunda sinn sem X-Games er haldið í Los Angeles og í boði eru 3 dagar af endalausri skemmtun. X-Games verður haldið helgina 29. Júlí - 1. Ágúst.
Andre Villa sigraði X-fighters (Myndskeið)
Norðmaðurinn Andre Villa sigraði fyrstu Red Bull x-fighters keppnina á þessu ári sem haldin var í Mexico um helgina. Keppnina var haldin í Plaza de Toros Monumental fyrir framan 42.000 manns, sem skemmtu sér konunglega þrátt fyrir mikla rigningu. Rigningin setti síðan strik í reikninginn og varð að hætta keppni þegar hún var aðeins hálfnuð og voru stig keppanda lögð saman og stóð þá Andre Villa uppi sem sigurvegari.
Á bakvið tjöldin með Ronnie Renner
Skemmtilegt video þar sem Ronnie Renner fer með okkur bakvið tjöldin á Red bull X-fighters 2010 í Mexíkó. Skemmtilegt video sem verðugt er að skoða nánar.
Red Bull X-figters tour 2010
Red bull hefur gefið út hvar X-fighters tour verður staðsettur í ár. En Red bull X-fighters er ein vinsælasta freestyle keppnin í heiminum í dag. X-fighters verður haldið í Mexico City, Giza, Moscow, Madrid, London and Rome en dagsetningar hafa ekki komið fram ennþá, vitað er um að allir helstu freestyle kapparnir hafa skráð sig til leiks eins og Robbie Maddison, Nate Adams, Dany Torres, Cameron Sinclair og Eigo Sato.



Erlent
