Icemoto.is

Fréttavefur hjólamanna

Sunnudagur, 4 Febrúar 2012

Þú ert hér: Freestyle

Freestyle

Fréttir um gang mála í freestyle.

Freestyle sýning í Galtalæk

galtalaekurNewLaugardaginn 25. júní næstkomandi fer fram freestyle sýning í Galtalækjarskógi en þar munu þrír erlendir ökumenn leika listir sýnir ásamt tveimur íslenskum ökumönnum. Eins og fram hefur komið munu þeir Martin Snellström og Micke Gullstrand mæta á klakann og leika listir sínar fyrir íslendinga, en nú hefur einn annar ökumaður bæst í hópinn. Ekki er búið að gefa upp nafnið á honum en hann hefur eins og hinir tveir líka keppt á Red Bull X Fighters.

Levi Sherwood meiddur - Missir af X games

LeviCrassFreestyle ökumaðurinn Levi Sherwood meiddist nokkuð á Nitro Circus LIVE show í Las Vegas síðustu helgi þegar hann neyddist til að stökkva af hjóli sínu í loftinu eftir að hjólið hans fór í hlutlausann rétt áður en hann yfirgaf rampinn. Sherwood braut tvö bein í vinstri úlnlið, marði lunga, meiddist á nýra og brákaði nokkra hryggjaliði.

Travis Pastrana biður konunnar (Myndskeið)

Travis-Pastrana-Lyn-Z-Adams-Hawkins4. júní síðastliðinn var Travis Pastrana ásamt Nitro Circus liðinu öllu með sýningu í Las Vegas sem bar heitið "Nitro Circus Live Show". Þegar liðið var á sýninguna greip Travis míkrafóninn og bað kærustuna sína að hitta sig neðst á rampinum á sýningunni. Þegar þar var komið bað hann hennar og að sjálfsögðu sagði hún já.

Travis Pastrana Base jumpar í Las Vegas (Myndskeið)

Nitro-Circus-Live-Base-Jump-4Um helgina var haldin sýning fyrir utan MGM hótelið í Las Vegas af meðlimum Nitro Circus sem bar heitið Nitro Circus LIVE show. Þar sýndu Travis Pastrana og fleirri listir sýnar á mótorhjólum, bmx hjólum o.fl. Þeir Travis Pastrana og Erik Roner ákvaðu að Base jumpa af þaki MGM hótelsins morguninn fyrir sýninguna. Á myndskeiðinu með fréttinni má sjá þá gera það.

Freestyle- kappar á leið til landsins

galtalaekurFreestyle kapparnir Martin Snellström og Micke Gullstrand eru á leið til landsins til að halda freestyle sýningu fyrir landann. Sýningin verður haldin á útihátíðinni í Galtalæk sem fram fer helgina 24-26 júní næstkomandi.

Viðtal við Monty "mekka" Levi Sherwood

Hvernig ætli það sé að vera "mekki" hjá einum besta FMX ökumanni í heimi ? Smá innlit í líf Monty (Stephen Montgimery),sem er mekki hjá hinum Nýja Sjálenska Levi Sherwood Red Bull X-fighters meistara og X-Games Silfurverðlaunahafa  og lesið hvernig hann lifir lífinu með Levi Sherwood.

Montey_3

http://www.freeridermx.com.au/news/latest-buzz/1930-montey-the-great

 

Travis Pastrana sigraði Moto X freestyle (Myndskeið)

pastrana_doubflipOfurhuginn Travis Pastrana sigraði Moto X Freestyle viðburðinn sem fram fór í gærkvöldi á X Games. Sigurinn var kominn í höfn eftir aðeins tvær umferðir hjá Travis, en þegar kom að þriðju og síðustu umferð hans ákvað hann að fara niður á freestyle- svæðið fagna aðeins og taka svo tvöfallt backflip fyrir áhorfendur.

Josh Hill slasaður (Myndskeið)

JoshHillSanSupercross ökumaðurinn Josh Hill slasaðist ílla þegar hann var að æfa sig fyrir X Games í gær. Josh var að æfa sig fyrir "Speed & Style" viðburðinn og var að æfa backflip þegar eitthvað fór úrskeiðis og hann datt ílla. Josh var fluttur með sjúkrabíl á næsta sjúkrahús þar sem hann var ransakaður. Kom í ljós að hann er með brotna öxl, brotið læri, marið lunga og fór hann einnig úr mjaðmalið. Josh er á leiðinni í aðgerð í dag þar sem gert verður að sárum hans.

Travis Pastrana keppir í nokkrum greinum á X Games

pastranaXgamesOfurhuginn Travis Pastrana hefur ákveðið að setja nýtt met á X Games í ár. Ætlar hann að gera það sem enginn maður hefur gert á leikunum áður, keppa í fimm greinum á sama mótinu. Árið 2006 keppti Travis í fjórum greinum og vann gullið í þremur af þeim. Í ár ætlar hann að keppa Rally, SuperRally, Moto X Best Trick, Speed & Style og Freestyle, en hann hefur ekki keppt í freestyle síðan 2006.

Síða 1 af 3