Icemoto.is

Fréttavefur hjólamanna

Sunnudagur, 4 Febrúar 2012

Þú ert hér: Enduro Innlent

Innlent

Slóðavinir gefa út nýtt myndband

vadvideoSlóðavinir gáfu út um daginn nýtt fræðslumyndband sem sýnir hvernig á að losa vatn úr mótor. Mjög fróðlegt og gott myndband frá Slóðavinum sem vefurinn mælir með að fólk skoði.

Úrslit í skemmtikeppni Hjartar

SkemmtikeppniMikið stuð var í gær þegar skemmtikeppni Hjartar fór fram í Bolöldu í gær, en keppnin var haldin til styrktar Hirti líklegum en hjólinu hans var stolið fyrir nokkrum vikum. Keppnin fór vel fram og skemmtu keppendur sér konunglega, en um 40 keppendur tóku þátt í keppninni. Keppendur fengu að fara einn prufuhring fyrir start til að kynnast brautinni og var það Guggi sem leiddi keppendur hringinn.

Nánar um styrktarkeppni VÍK

dearNæstu helgi fer fram endurokeppni til styrktar Hirti L. Jónssyni, nánar tiltekið sunnudaginn 11. júlí. Keppnin er ætluð öllum og verður með nýstárlegu móti þar sem menn verða dregnir saman í tveggja manna lið. Reynt verður að jafna liðin eins og hægt er þannig að vanur hjólari/keppandi er settur með óvönum hjólara og er markmiðið að allir hjóli á sínum hraða og skemmti sér vel.

Styrktarkeppni fyrir Hjört

hjorturSivEins og flest öllum er kunnugt um var hjólinu hans Hjartar (Líklegum) stolið fyrir nokkrum vikum og hefur ekki enn komið í leitirnar. Vélhjólaíþróttaklúbburinn VÍK hefur ákveðið að halda enduro keppni til styrktar honum og mun ágóðinn renna óskiptur til hans svo hann geti verslað sér nýtt hjól eða gert við gamla ef það kemur í leitirnar, en verður að viðurkennast að líkurnar á því minnka með hverjum degi sem líður.

Myndir frá enduro á Akureyri

ak27Nú eru myndir frá endurokeppninni á Akureyri byrjaðar að koma inn á vefinn. Hægt er að skoða þær í myndaalbúminu á síðunni eða með því að smella hér. Fleiri myndir koma inn á síðuna sem allra fyrst, endilega fylgist vel með.

Kári sigraði á Akureyri (Myndir)

forsidaKári Jónsson kom sá og sigraði í annari umferð Íslandsmeistaramótsins í enduro cross country sem haldin var á Akureyri í dag. Veðrið lék við keppendur og áhorfendur, en um 22 stiga hiti var á Akureyri í dag. Brautin var rosalega flott og tæknileg, enda norðanmenn ekki þekktir fyrir annað en að gera skemmtilegar brautir. Einhverjir áttu þó í vandræðum bæði í þröngum stígum og í mýri sem var í brautinni.

Enduro Cross Country um helgina

endurobolÖnnur umferð íslandsmeistaramótsins í Enduro Cross Country fer fram um helgina á Akureyri. Norðanmenn eru þekktir fyrir að búa til skemmtilegar og tæknilegar brautir og verður brautin í ár engin undantekning á því. Frábær veðurspá er fyrir keppnina, en spáð er 20° hita og sól.

Stelpu enduro ferð

kvennaStelpuenduroferð verður farin næsta sunnudag 13. júní í boði Blue Mountain og Moto. Mæting er kl. 10.00 á bílaplani Olís við Norðlingaholt. Þær sem eru í vandræðum með hjólin (þ.e. hafa ekki kerru) geta haft samband við Teddu í síma 896-1318. Þessi ferð er fyrir allar stelpur, fyrir þær sem eru hraðar en líka fyrir þær sem hafa ekki hjólað nema nokkrum sinnum, það verður nóg af fólki til að aðstoða.

Hjóli stolið

stolidhjol2Tilkynning frá Hirti Líklegum.
Í dag var Husqvarna TE410 ´97 mótorhjólinu mínu stolið fyrir utan Ásgarð 53. Hjólið er ekki mikils virði í peningum, en hefur mikið tilfinningarlegt gilfi fyrir mig þar sem að ég er búin að eiga hjólið í 13 ár og keyra það yfir 35.000 kílómerta þetta er eina hjólið á landinu sem lítur svona út og er með Husky-límmiða. Ég sendi mynd af hjólinu, en í dag var hjólið með svart framljós og ekki neinar handahlífar.

Aðgerðaráætlun vegna utanvegaaksturs komin út

utanveUmhverfisráðuneytið hefur unnið aðgerðaráætlun gegn akstri utan vega til þriggja ára, undir heitinu Ávallt á vegi. Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, kynnti áætlunina formlega í dag. Akstur utan vega virðist vera vaxandi vandamál á Íslandi, að mati ráðuneytisins.
Ráðuneytið sagði að landið sé víða viðkvæmt fyrir ágangi og gáleysislegur akstur getur valdið skemmdum á náttúrunni sem eru ár eða jafnvel áratugi að jafna sig.

Fjöldi fólks mætt á klaustur

klausturfrontFjöldi fólks er nú statt á Kirkjubæjarklaustri en þar fer fram Klaustur offroad challange í níunda sinn. Keppendur eru að koma sér fyrir í pittinum og gera sig tilbúna fyrir átök morgundagsins. Margir hafa gengið brautina í dag og þar á meðal fréttamaður og má segja að hún sé mjög flott. Eitthvað er um börð, brekkur og mýri og verður skemmtilegt að fylgjast með keppendum morgundagsins.

Kári sigraði í Bolöldu

endurobolaldastart2010Kári Jónsson sigraði í fyrstu enduro-keppni ársins sem haldin var á akstursíþróttasvæði VÍK ,Bolöldu í gær. Brautin lá frá motocross brautinni og inn í Jósefsdal og var hringurinn um 14 km. Þeir keppendur sem fóru hvað hraðast yfir voru um 20 mínútur að fara hringinn. Met þáttaka var í keppninni og tóku um 100 manns þátt í keppninni, en mikill fjöldi tók þátt í 40+ flokknum.

Nýjar reglur í enduro

endurobolaldahringurEflaust eiga nýjar reglur í Íslandsmótinu í enduro eftir að setja nokkur svip á keppnishaldið á laugardaginn. Keppnin heitir nú Enduro CC sem stendur fyrir Enduro Cross Country, en lögð verður meiri áhersla á betra flæði í brautunum heldur en ófærur eins og tíðkast hefur undanfarið.

100 manns skráðir í fyrstu endurokeppni sumarsins

endurobolÓtrúlega góð skráning er í fyrstu umferð íslandsmótsins í motocross, sem fram fer í Bolöldu næstkomandi laugardag. Um 100 manns eru skráðir til leiks sem má teljast mjög góð þáttaka. Ágætis veðurspá er fyrir helgina, en gert er ráð fyrir 6 stiga hita og litlu sem engu roki.

Skráning hafin í fyrstu endurokeppni sumarsins

endurohjol1. umferð Íslandsmótsins í Enduro Cross-Country fer fram laugardaginn 8. maí í Jósepsdal. Jósepsdalur er við Bolaöldu, akstursíþróttasvæði VÍK sem flestum er kunnugt um. Skráning er hafinn á msisport.is
Skorum á keppendur sem ætla að keppa saman á Klaustri að skrá sig í tvímenning og taka létta æfingu fyrir keppnina, koma sér í hjólagírinn.

Blach Beach bakki aflýst

sandraceÍ fréttatilkynningu um fyrirhugaða keppni í Bakkafjöru 24. apríl stóð að skráning í keppnina mundi hefjast eftir páska.
Margir hafa beðið eftir að skráning hæfist, en það hefur dregist vegna fyrra gossins á Fimmvörðuhálsi og þar sem verið var að bíða eftir framvindu þess. Á miðvikudag átti að hefja skráningu, því það virtist eins og að svæðið væri að róast og þá dundu ósköpin yfir sem settu allt í stóra biðstöðu.

Hvað verður um Beach Race ?

oskufallMargir hafa verið að velta fyrir sér hvort fresta þurfi Beach Race-inu sem halda á laugardaginn 24. apríl vegna eldgossins sem hófst í Eyjafjallajökli í gær. Talið er að hægt verði að halda keppnina á tilsettum tíma, þrátt fyrir elgosið. Enn eru þó líkur á því að fresta þurfi keppninni ef gosið færist enn meira í aukanna en ekkert er hægt að segja til um það, enda eru náttúruöflin óútreiknanleg.