Enduro og trial kappinn Graham jarvis kann sko að hjóla. Í meðfylgjandi myndbandi sjáum við Graham æfa sig og um leið leika listir sínar á Husaberg hjólinu sínu. Hreint út sagt ótrúlegir hæfileikar þarna á ferð.
Erlent
Svona á að æfa fyrir enduro (Myndband)
Enduro og trial kappinn Graham jarvis kann sko að hjóla. Í meðfylgjandi myndbandi sjáum við Graham æfa sig og um leið leika listir sínar á Husaberg hjólinu sínu. Hreint út sagt ótrúlegir hæfileikar þarna á ferð.
Nýji KTM 450 EXC mótorinn (2012)
Nýjar myndir hafa borist frá KTM af nýja 450 EXC mótornum og eru miklar breytingar í honum. Þó svo að þetta séu upprunalegar myndir frá KTM gætu verið gerðar breytingar á mótornum áður en hann kemur á markað þó svo að það sé ekki víst. 2012 EXC 450 mótorinn kemur með beinni innspýtingu á meðan 450 SXF mótorinn verður enn með blöndung.
Red Bull Romaniacs hafið (Myndskeið)
Ein erfiðasta enduro keppni heims, Red Bull Romaniacs er hafin en þetta er í sjöunda skipti sem
keppnin er haldin. Keppendur þurfa að fara yfir allsskyns hindranir s.s. dekkjahauga, sleipar brýr, upp stigaganga og keyra yfir stór grjót. Margir keppendur ná ekki einu sinni að klára keppnina en hún stendur yfir í nokkra daga.
EnduroTrial með Tadeusz Blazusiak (Myndskeið)
Hann Tadeusz Blazusiak er hreint ótrúlegur hjólari hvort sem hann er á endurohjóli, trialhjóli eða götuhjóli. Hann hefur keppt í hinum ýmsum keppnum í enduro og endurocrossi og annað hvort unnið eða verið í topp 3. Tadeusz er hreint ótrúlegur á hjóli og er venjulegt endurohjól eins og reiðhjól undir honum.
Enduro, ekki bara keyrsla
Enduro snýst ekki bara um að hjóla en það sést vel í myndbandinu sem fylgir þessari frétt. En þar sérð þú viðgerðamenn KTM Factory liðsins og E1 ökumanninn Johnny Aubert og Eero Remes gera hina ýmsu hluti í miðri keppni.



Erlent
