Reynir er búinn að vera að græja og gera Álfsnesbrautina. Brautin verður opnuð á morgun, Sunnudag, kl 12:00. Allir að muna eftir miðunum í N1 Mosó. ATH enginn fer miðalaus í brautina……
Það gætu verið einn til tveir mjúkir / blautir kaflar í brautinni og er nauðsynlegt að fara varlega fyrstu hringina. Og að sjálfsögðu stoppa allir öðru hverju til að hreinsa steina og drasl úr brautinni.
Álfsnesnefndin.



Ástand brauta
Sólbrekka var í ágætis standi í gær, mánudaginn 12. apríl þegar brautarkönnuður icemoto.is leit á hana. Brautin var að vísu svolítið vúppsuð og smá grafin, en með fínum uppstökkum. Gripið í henni var rosalegt og var fólk að vonum mjög ánægt með hana.
